Innritun nýnema lokið

Innritun í framhaldsskóla landsins er nú lokið og umsækjendur geta séð stöðu umsókna sinna á Stafrænu Íslandi. Það gleður okkur að segja frá því að 225 nemendur sem voru að ljúka grunnskóla hafa fengið skólavist í FÁ, auk þess eru eldri nemendur sem hafa fengið skólavist í FÁ í haust 113 talsins. Útlit er því fyrir að um 920 nemendur muni stunda nám í FÁ í dagskóla á næstu önn.

Nýstúdent úr FÁ bar blómsveig að minnisvarða Jóns Sigurðssonar

Daniel do Carmo Njarðarson, nýstúdent frá Fjölbrautaskólanum við Ármúla, var þess heiðurs aðnjótandi að taka þátt í hátíðarhöldunum á Austurvelli í tilefni af 82 ára afmæli lýðveldisins. Með honum í athöfninni var Eyrún Freyja Andradóttir, nýstúdent frá Menntaskóla Borgarfjarðar.

FÁ-ingar með námskeið í kvikmyndagerð í Grundaskóla

FÁ-ingarnir Ingigerður Bergvinsdóttir, Brynjar Orri Smith og Steinn Torfi Ólafsson héldu námskeið í kvikmyndagerð í Grundaskóla á Akranesi um helgina. Námskeiðið gekk afar vel og ætla má að myndirnar sem krakkarnir gerðu á námskeiðinu verði sýndar á Kvikmyndahátíð Grundarskóla sem fer fram núna í vikunni. Þetta er í annað sinn sem nemendur úr FÁ halda námskeið í Grundaskóla í tengslum við kvikmyndahátíðina. Á myndinni má sjá þau Ingu, Brynjar og Stein ásamt nemendum á námskeiðinu.

Ný tölvuleikjalína í FÁ

Tölvuleikir eru ein stærsta afþreyingar- og skapandi grein heims og áhrif þeirra ná langt út fyrir skjáinn. Þeir tengjast tækni, listum, hönnun, sagnagerð, samskiptum og nýsköpun. Í haust býður Fjölbrautaskólinn við Ármúla upp á nýja Tölvuleikjalínu innan Nýsköpunar- og listabrautar, þar sem nemendur fá tækifæri til að skoða tölvuleiki í víðari samhengi.

Skólaheimsókn til Ítalíu

Þann 25. maí hélt 60 manna hópur kennara og starfsmanna í FÁ til Rómar í Ítalíu. Tilgangur ferðarinnar var að kynna sér starfið í tveim skólum í borginni Ferentino og í Róm. Tveir ólíkir en flottir skólar sem gaman var að heimsækja.