04.03.2026
Tveir kennarar og þrír nemendur Fjölbrautaskólans við Ármúla fóru til Serres í Grikklandi í síðustu viku í tengslum við Erasmus+ verkefnið We Shape the Future. Í ferðinni fengu þátttakendur frá Íslandi, Grikklandi, Tyrklandi og Ítalíu fræðslu um gagnaukinn veruleika og með hvaða hætti er hægt að nýta tæknina í námi og kennslu. Hópurinn ferðaðist einnig um landið og skoðaði meðal annars Alistrati-hellirinn og borgina Þessalóniku. Frá Fjölbrautaskólanum við Ármúla fóru þau Andri Ingvason raungreinakennari, Bjarki Þór Jónsson tölvukennari ásamt nemendunum Ester Sól, Söru Jóhönnu og Oliwiu.
04.03.2026
Nemendur í fjölmiðlafræði í FÁ gerðu þetta skemmtilega skólablað og gáfu út á Árdaginn. Áhugaverð viðtöl við starfsfólk, umfjöllun um skemmtileg verkefni í skólanum, skólalífið og fleira. Við mælum með að þú kíkir á þetta metnaðarfulla blað.
03.03.2026
Söngkeppni FÁ fór fram á Árdegi skólans fimmtudaginn, 26. febrúar. Stemningin var frábær og dagskráin glæsileg. Hinn frábæri og skemmtilegi Elvis eftirherma var kynnir í keppninni og tók eitt lag við góðar undirtektir. Þá steig hin sívinsæla starfsmannahljómsveit ÚFF á svið og flutti þrjú lög – ekki margir skólar sem geta státað af jafn flottu starfsfólkshljómsveit. Nemendur í tónsmiðjunni tóku líka eitt lag.
Alls tóku sjö glæsileg atriði þátt og sýndu svo sannarlega að í FÁ er mikið af hæfileikaríku tónlistarfólki. Keppnin var jöfn og spennandi, en úrslitin urðu þau að Hafþór Fannar hreppti þriðja sætið með lagið “I Was Made for Lovin’ You” með Kiss. Elsa Sigríður lenti í öðru sæti með “Hopelessly Devoted to You” með Olivia Newton-John.
Sigurvegari keppninnar var Kapitola Kristín með glæsilegan flutning á laginu “Stand Out” úr myndinni Goofy Movie. Hún heillaði bæði með söng og sviðsframkomu og mun því keppa fyrir hönd FÁ í Söngkeppni framhaldsskólanna þann 11. apríl.
Hjartanlega til hamingju, Kapitola Kristín! 🎶✨
02.03.2026
Á fimmtudaginn í síðustu viku, 26. febrúar var árlegur Árdagur haldinn í FÁ, einn skemmtilegasti dagur ársins. Árdagar eiga sér langa sögu í FÁ en þá daga gera nemendur og starfsmenn sér dagamun og brjóta upp hefðbundinn skóladag.
Nemendur skiptu sér í tæplega 20 lið, hvert lið merkt ákveðnum lit eða mynstri. Liðin kepptu síðan sín á milli í fjölbreyttum þrautum sem starfsfólk var búið að undirbúa. Þrautirnar spönnuðu allt frá íþróttum til lista, heilaleikfimi til handavinnu, perluföndri til spurningakeppna. Þessum skemmtilega degi lauk svo á söngkeppni og pizzaveislu.
Það var fjólubláa liðið sem vann keppnina eftir harða baráttu við það gráa. Stóðu þau sig vel í þrautunum og voru þau dugleg að hvetja liðsfélaga sína og halda uppi góðri stemningu.
Árdagur er alltaf jafn skemmtilegur og einkennist af gleði og samvinnu. Markmiðið er ekki einungis að leysa verkefnin, heldur einnig að efla tengsl milli nemenda og skapa jákvætt og uppbyggilegt andrúmsloft í skólanum. Mikil gleði var með Árdaginn í ár, þrautirnar nýjar og skemmtilegar og skipulagið til fyrirmyndar.