Fyrsta fjallganga annarinnar

Það voru tæplega 30 nemendur sem fóru í fyrstu fjallgöngu annarinnar ásamt kennurunum Hrönn og Guðmundi Frey. Var ferðinni heitið í Búrfellsgjá. Hópurinn fór frá Búrfellinu, að Valabóli og þaðan að Kaldárseli. Það var gengið framhjá skemmtilegum hellum og gjárétt sem er í gjánni skoðuð. Veðrið var fínt en smá vindur sem gaf stundum sandfjúk en sem betur fer í bakið. Virkilega skemmtileg ganga. Næsta ganga er áætluð 14. mars og þá er ferðinni heitið að Tröllafossi.

Heimsókn í stofnanir Evrópusambandsins í Brussel

Sex nemendur úr Fjölbrautarskólanum á Ármúla tóku þátt í Erasmus+ verkefni í Brussel í Belgíu dagana 4.-10. febrúar ásamt kennurunum Ásdísi Magneu og Eddu Láru. Heimsóknin var hluti af stóru Erasmus+ verkefninu “Democracy and Freedom” sem unnið er í samstarfi við skóla frá Lannion, Frakklandi, Emden Þýskalandi og Santo Tirso Portúgal. Nemendurnir sem tóku þátt í verkefninu voru þau Ragnheiður Sóley, Jenný, Vilberg Samuel, Hekla Sóley, Nadia Ursula og Eva. Nemendur höfðu samið stefnuyfirlýsingu um framtíð ungs fólks í Evrópu sem þau kynntu fyrir nokkrum af ráðherrum Evrópusambandsins og að auki fengum við tvo fulltrúa frá Sendiráði Íslands sem hlýddu á kynningarnar.

FÁ er fyrirmyndastofnun 2025

Fjölbrautaskólinn við Ármúla hlaut í gær viðurkenningu í könnun Sameykis um stofnun ársins 2025. FÁ er fyrirmyndarstofnun og var í fjórða sæti í flokka stórra stofnana með 90 starfsmenn eða fleiri. Við í FÁ erum virkilega stolt yfir þessari niðurstöðu. Magnús Ingvason skólameistari veitti viðurkenningunni viðtöku við hátíðlega athöfn hjá Sameyki. Titlana Stofnun ársins, Stofnun ársins hljóta þær stofnanir sem þykja skara fram úr í þeim níu þáttum sem könnunin byggir á að mati starfsmanna þeirra. Um er að ræða mat á innra starfsumhverfi stofnana og starfsstaða. Stofnun ársins er samstarfsverkefni Sameykis, fjármála- og efnahagsráðuneytisins og Reykjavíkurborgar. Könnunin veitir mikilvægar upplýsingar um styrkleika og áskoranir í starfsumhverfi stofnana, starfsfólki til hagsbóta. Á hverju ári tekur allt starfsfólk skólans, óháð félagsaðild, þátt í könnuninni sem fer þannig fram að spurningalisti er lagður fyrir starfsfólk á netinu. Mælingin nær yfir níu ólíka þætti og þannig fæst heilsteypt mynd af innra starfsumhverfi stofnana. Þeir níu þættir sem eru mældir eru: stjórnun, starfsandi, launakjör, vinnuskilyrði, sveigjanleiki vinnu, sjálfstæði í starfi, ímynd stofnunar, ánægja og stolt og jafnrétti. Hér má sjá nánar um Stofnun ársins og niðurstöður frá 2025.

Fagnaðarfundir á Framadögum í HR

Á Framadögum HR í síðustu viku hitti Halla Tómasdóttir forseti Íslands tvo fyrrverandi nemendur FÁ, þær Dönu Za­her El Deen og Di­önu Al Barouki frá Sýrlandi. Þær eru núna nemendur í HR. Þær Dana Zaher El Deen og Diöna Al Barouki ásamt henni Ngan frá Víetnam, útskrifuðust frá FÁ síðasta vor með glæsilegum árangri og eiga það sameiginlegt að íslenska er þeirra annað mál. Í ávarpi sínu á Austurvelli á þjóðhátíðardeginum lagði forseti meðal annars áherslu á mikilvægi samtals og samskipta. Hún bætti síðan við: „Við þurfum að taka okkur tíma til að horfast í augu við hvert annað, leggja símann til hliðar og eiga samverustundir með fullri þátttöku og innlifun. Notum orðin okkar, hlýðum á hljómfall þeirra, njótum þess hve dásamlegt og einstakt tungumál við eigum og kennum nýjum Íslendingum að tala það. Við vitum að nýir Íslendingar geta lært málið vel og má í því sambandi minna á vinkonurnar þrjár sem dúxuðu í Fjölbrautaskólanum í Ármúla í vor og fengu verðlaun fyrir góðan árangur í íslensku.“ Þær Dana og Diana þökkuðu Höllu fyrir hvetjandi ummæli sem hún lét falla í hátíðarávarpi sínu 17. júní 2025 og sérstaklega fyrir að hafa gert námsárangur þeirra og Ngan að umtalsefni og sögðu stuttlega frá reynslu sinni af náminu við HR.

Heimsókn sérnámsbrautar í slökkvistöðina í Hafnarfirði

Ævintýrin halda áfram hjá nemendum á sérnámsbraut en þau fengu nýverið tækifæri til að heimsækja slökkvistöðina í Hafnarfirði. Þar var vel tekið á móti þeim og var þeim boðið að kynna sér það sem snýr að starfi slökkviliðsmanna. Nemendur fengu leiðsögn um stöðina, skoðuðu búnað og tæki og fræddust um verkefni slökkviliðsins. Virkilega skemmtileg og fræðandi heimsókn.

Heimsókn frá Svíþjóð

Við fengum góða heimsókn í FÁ í gær þegar þær Cecilia Nord kennari og Maria Pettersson rektor í Falu Frigymnasium í Svíþjóð komu í heimsókn. Markmiðið með heimsóknni var að að kynna sér starfsemi heilbrigðisskólans, styrkja tengsl skólanna og kanna möguleika á samstarfi á sviði heilbrigðismenntunar. Gestirnir vonast til að unnt verði að sækja um Nordplus-verkefni á næstu mánuðum og leggja þannig grunn að áframhaldandi alþjóðlegu samstarfi.

Áhugavert hlaðvarp - Afbragðsnemandi leitar að starfi

Við viljum vekja athygli á áhugaverðu hlaðvarði sem Hrönn Baldursdóttir náms- og starfsráðgjafi í FÁ heldur úti. Þar fjallar hún um ýmislegt er viðkemur námstækni og náms- og starfsferilinn. Hlaðvarpið hóf göngu sína 24. apríl 2025 og kemur nýr þáttur í loftið á fimmtudögum. Hér er hægt að hlusta: https://thinleid.is/podcast

FÁ úr leik í Gettu betur

FÁ er því miður úr leik í Gettu betur eftir tap á móti sterku liði ME í gær en staðan eftir keppnina var 23 - 14. Lið FÁ er skipað þeim Eiríki Stefánssyni, Iðunni Úlfsdóttur og Hilmari Birgi Lárussyni.

Nemendur á sérnámsbraut heimsóttu Hjálparsveit skáta Garðabæ

Nemendur í áfanganum Starfsnám og Lok á sérnámsbraut heimsóttu Hjálparsveit skáta Garðabæ. Þar fengu þeir innsýn í starf björgunarsveitarinnar, kynntust tækjum og búnaði og lærðu um það mikilvæga hlutverk sem sveitin gegnir í samfélaginu. Heimsóknin var bæði fræðandi og áhugaverð og fengu nemendur að prófa allskonar tæki og tól.

Nýtt listaverk á Steypunni

Nemendur og aðrir gestir hafa eflaust tekið eftir því að búið er að mála flotta mynd á stóra vegginn á Steypunni. En það voru 3 nemendur í áfanganum málun 2 sem tóku það verkefni að sér á haustönninni, þær Bergný Klara, Timea Garajszki og Katrín Edda.