06.05.2026
Nemendur á sérnámsbraut hafa verið duglegir að fara í ýmsar vettvangsferðir undanfarið. Um daginn kíktu þau í Hörpu og fengu góða leiðsögn um húsið. Þau fengu að sjá alla salina og kíkja aðeins baksviðs og einnig náðu þau að sjá sinfoníuhljómsveitina spila.
Svo kíktu þau í Ásmundarsafn sem er alltaf ævintýri.
Hér má sjá myndir frá heimsóknunum:
04.05.2026
Í síðustu viku fóru fram Skuggakosningar í framhaldsskólum landsins og að sjálfsögðu tókum við í FÁ þátt. Skuggakosningar eru kosningar þar sem framhaldsskólanemar kjósa sína fulltrúa í sveitarstjórnarkosningum og munu endurspegla vilja nemenda um allt land.
Frambjóðendur 11 stjórnmálaflokka sem bjóða fram í Reykjavík komu í heimsókn í skólann á þriðjudaginn 28. apríl, kynntu málefni sín og sátu fyrir svörum. Nemendur í heimspeki og félagsfræði kenninga sáu um skipulag og stjórnun fundarins og fór hann mjög vel fram. Nemendur komu með frábærar spurningar og voru vel undirbúin.
Skuggakosningarnar sjálfar fóru svo fram á Steypunni, miðvikudaginn 29. apríl, en nemendur sem voru fæddir 15. maí 2024 og síðar voru á kjörskrá.
Kosningarþátttaka var 19%. Vonandi verður kosningaþátttaka ungs fólks heldur meiri í sveitarstjórnarkosningunum sem fara fram 16. maí og óskum við nýjum kjósendum til hamingju með kosningaréttinn.
04.05.2026
Á ári hverju býðst ungu fólki í grunn- og framhaldsskólum að taka þátt í samkeppni á vegum Landverndar. Samkeppnin ber heitið Umhverfisfréttafólk og snýst um að koma umhverfismáli að eigin vali á framfæri við almenning með fjölbreyttum leiðum.
Nemendur í ljósmyndavali í FÁ - LJÓS2SM05 undir stjórn Jeannette Castioni, tóku myndir og unnu þær og sendu í keppnina. Alls voru tvö verkefni frá FÁ en 15 framhaldsskólar tóku þátt í þessu verkefni
Verðlaunaathöfn keppninnar fór fram á mánudaginn 27. apríl í húsakynnum Landverndar.
Loki Úlfur Skarphéðinsson nemandi í FÁ fékk viðurkenningu fyrir listsköpun fyrir ljósmyndina sína “Beings of the Dawn”.
Ingigerður Anna Bergvinsdóttir var með 2 ljósmyndir í keppninni og sem kallast „Bernska úr plasti“. Mjög áhugaverðar og frumlegar myndir.
Hér má sjá fleiri úrslit í keppninni: https://graenfaninn.is/2026/04/30/sigurvegarar-i-umhverfisfrettafolki-2026/
Innilegar hamingjuóskir Loki Úlfur