Brautskráning í dag klukkan 13.00
Í dag, laugardaginn 27. maí, klukkan 13.00 er komið að brautskráningu nemenda frá FÁ. Það er alltaf hátíðleg stund þegar nemendur sem svo lengi hafa verið hluti af skólalífinu, kveðja skólann og halda hver í sína áttina til að takast á við verkefni framtíðarinnar. Við skulum óska þeim velfarnaðar á lífsins vegi og vona að þeir verði sjálfum sér og þjóðfélaginu til sóma, alveg eins og þeir hafa verið skólanum til sóma þau ár sem þeir stöldruðu við í FÁ.
Dagskrá brautskráningarinnar má sjá með því að smella hér.