07.10.2026
Árlegur skólafundur Fjölbrautaskólans við Ármúla var haldinn miðvikudaginn 7. október. Einu sinni á ári er kennsla felld niður í eina kennslustund og tíminn nýttur til fræðslu og umræðna um málefni sem snerta nemendur, skólasamfélagið og samfélagið í heild.
07.10.2026
Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, efnir til Samtals þjóðar laugardaginn 10. október, þar sem fólk um allt land kemur saman til að ræða það sem skiptir okkur máli og horfa til framtíðar.
Fjölbrautaskólinn við Ármúla tekur þátt í verkefninu og fer samtal okkar fram í Menntaskólanum við Sund. Nemendur FÁ, ásamt forráðafólki, eru hvattir til að mæta og taka þátt.
Húsið opnar kl. 13:30 og samtalið hefst kl. 14:00.
Samtal þjóðar byggir á þeirri hugmynd að samfélagið verði sterkara þegar við gefum okkur tíma til að hlusta hvert á annað, ræða saman og taka virkan þátt í að móta framtíðina.
Ungt fólk leiðir samtalið en fólki á öllum aldri er boðið að taka þátt og skapa þannig raunverulegt samtal kynslóða. Um allt land mun fólk hittast, hlusta hvert á annað og deila vonum sínum, gildum og hugmyndum um framtíðina.
Skráning og nánari upplýsingar um verkefnið má finna á talasaman.is.
06.10.2026
Vikuna 21. – 25. september fóru fimm nemendur og tveir kennarar úr FÁ til bæjarins Jonava í Litháen til að taka þátt í verkefninu Nordplus Junior – Consumerism 2028. Eins og nafnið gefur til kynna snýst verkefnið um neysluhyggju í nútímasamfélagi og þemað í á þessum fundi var matarsóun. Aðrir þátttakendur í verkefninu er framhaldsskólar frá Litháen, Danmörku og Svíþjóð. Nemendurnir okkar kynntu FÁ og héldu einnig fyrirlestur þar sem þau kynntu meðal annars hvernig reynt er að koma í veg fyrir matarsóun í skólanum og niðurstöðu rannsóknar á matarsóun á íslenskum heimilum sem þau framkvæmdu í aðdraganda ferðarinnar. Þá fór hópurinn einnig saman til borgarinnar Kaunas og fékk að kynnast því hvernig sorphirðu og endurvinnslumálum er háttað í Litháen.
Ferðin var fróðleg fyrir alla þátttakendur og bæði nemendur og kennarar komu heim sátt og margs vísari eftir skemmtilega daga í Litháen. Í mars á næsta ári mun síðan annar hópur nemenda fara til Stokkhólms í Svíþjóð þar sem haldið verður áfram með verkefnið.
29.09.2026
Vel var tekið á móti nemendum FÁ þegar þau heimsóttu leikjafyrirtækið Bunkhouse Games í síðustu viku. Þar fengu þau kynningu á starfsemi fyrirtækisins og nýjum óútgefnum tölvuleik sem hefur verið í þróun um nokkurt skeið. Nemendur voru áhugasamir og spurðu meðal annars út í þróunarferli leiksins, sem ber heitið Flock Off!
22.09.2026
Það var sannkallað líf og fjör í Skautahöllinni í Laugardal dag þegar nemendur FÁ skelltu sér á skauta í tilefni af Íþróttaviku Evrópu.
21.09.2026
Í FÁ er hægt að velja fjallgöngu/útivist sem áfanga og hægt er að velja hann í staðinn fyrir hefðbundins íþróttaáfanga. Boðið er upp á 4-5 göngur yfir önnina í nágrenni höfuðborgarsvæðissins.
Á laugardaginn var fyrsta ganga vetrarins þegar 44 nemendur ásamt kennurum Þórhalli og Úlfari héldu inn í Hvalfjörð og gengu upp að Glym. Veðrið var frábært, sólin skein og haustlitirnir komnir. Hér má sjá myndir úr ferðinni.
21.09.2026
Í síðustu viku komu fjórir kennarar frá Nordhorn í Þýskalandi til okkar í heimsókn, þau Everina Brink, Senta Gerhardt, Holger Jouppien og HeinzGeorg Beckmann. Eins og oftast áður með heimsóknargesti okkar, þá voru þau himinlifandi með vikuna; alúðlegt viðmót allra starfsmanna og það flotta starf sem er unnið í skólanum.
18.09.2026
Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, hefur óskað eftir samstarfi við framhaldsskóla landsins vegna Samtals um framtíðina sem fram fer dagana 9.–11. október. Markmiðið er að skapa vettvang fyrir samtal milli kynslóða um samfélagið og framtíðina.
11.09.2026
Nýnemaferð Fjölbrautaskólans við Ármúla var haldin miðvikudaginn 9. september og var ferðinni að þessu sinni heitið í Skopp að ósk nemendafélagsins. Nýnemar mættu hressir og kátir, hoppuðu upp í rútu og brunuðu af stað. Í Skopp gafst þeim kostur á að prófa fjölbreyttar afþreyingar, þar á meðal risastóran trampólíngarð, karókí herbergi, skotbolta, klifurvegg, Pixel-leiki, fótboltavöll og margt fleira.
Meðlimir nemendafélagsins voru duglegir að ganga á milli hópa og draga nýnema inn í ýmsa leiki og hópefli. Nemendur voru mjög áhugasamir um að prófa nýja hluti, taka virkan þátt og kynnast samnemendum sem þeir höfðu jafnvel ekki talað við áður.
Boðið var upp á pizzu og gos í hádeginu og því fór enginn svangur heim. Nýnemum gafst einnig kostur á að bjóða sig fram sem nýnemafulltrúar í nemendafélagið og hafa um 30 nýnemar þegar sótt um.
Í heildina litið gekk ferðin mjög vel. Nýnemar fengu tækifæri til að kynnast samnemendum sínum betur, eiga skemmtilega stund saman og styrkja félagsleg tengsl sín fyrir komandi skólaár.
10.09.2026
Starfsfólk FÁ tók þátt í gula deginum sem er í dag, 10. september Gulur september er samvinnuverkefni stofnana og félagasamtaka sem vinna saman að geðrækt og sjálfsvígsforvörnum. Það er von undirbúningshópsins að gulur september auki meðvitund fólks um mikilvægi geðræktar og sjálfsvígsforvarna. auk þess að vera til merkis um kærleika, aðgát og umhyggju.