16.10.2025
Tvær ráðstefnur hafa verið haldnar árið 2025 um kennslu íslensku sem annars máls. Þar komu saman kennarar og skólastjórnendur ásamt formönnum Kennarasambands Íslands. Fyrri ráðstefnan var haldin á Ísafirði dagana 2. – 3. maí og fjallaði um kennslu íslensku sem annars máls, inngildingu og fjölmenningu í framhaldsskólum. Sú síðari var haldin á Akureyri dagana 19. – 20. september undir yfirskriftinni Samfélagið er lykill að íslensku. Að loknum báðum ráðstefnum voru sendar út ályktanir frá ráðstefnugestum til ýmissa stofnana í samfélaginu þar sem þess var m.a. krafist að stjórnvöld setji kennslu íslensku sem annars máls í forgang, að námsefnisgerð verði efld og henni hraðað og að hlustað sé á fagfólkið, kennarana sem kenna námsgreinina. Kallað var eftir því að ráðamenn og samfélagið í heild gefi íslensku séns.
Fimm kennarar úr Fjölbrautaskólanum við Ármúla sóttu þessar ráðstefnur, þær Hanna Óladóttir, Ingunn Garðarsdóttir, Kristjana Þórdís Jónsdóttir, Sigrún Eiríksdóttir og Sigrún Gunnarsdóttir.
15.10.2025
Í gær fór fram útgáfuhóf þar sem Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi, í samstarfi við Miðstöð menntunar og skólaþjónustu, og með stuðningi Utanríkisráðuneytisins og Mennta- og barnamálaráðuneytisins, kynnti nýjan kennsluvef – www.verdurheimurinnbetri.is.
14.10.2025
Í dag er alþjóðlegi rafrusladagurinn. FÁ tekur virkan þátt í deginum. Rafrusl eru öll raftæki, stór og smá; sem ekki eru lengur í notkun. Mikilvægt er að við komum þeim í réttan endurvinnslufarveg.
13.10.2025
FÁ hlaut viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2025, við hátíðlega athöfn sem haldin var 9. október í hátíðarsal HÍ.
Jafnvægisvogina fá þau fyrirtæki, sveitarfélög og stofnanir sem hafa náð að jafna kynjahlutfall í framkvæmdastjórnum. 90 fyrirtæki, 22 opinberir aðilar og 16 sveitarfélög hlutu viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar þetta árið. FÁ er þar á meðal og tók Guðlaug Ragnarsdóttir jafnréttisfulltrúi FÁ við viðurkenningunni fyrir hönd skólans.
Jafnvægisvogin heldur úti mælaborði með tölfræðilegum upplýsingum um jafnrétti. Þar koma fram helstu upplýsingar um stöðu kynjanna í íslensku atvinnulífi, m.a. kynjahlutföll stofnenda fyrirtækja, framkvæmdastjóra og stjórna.
Á ráðstefnu Jafnvægisvogarinnar árið 2020 var kynntur nýr Jafnréttislundur FKA, sem Skógræktarfélag Reykjavíkur útvegaði Jafnvægisvoginni. Viðurkenningu Jafnvægisvogar FKA fylgir tré að gjöf til gróðursetningar í Jafnréttislundi FKA, sem viðurkenningarhafar gróðursetja sjálfir í lundinum í dag, föstudaginn 10. október. Með því geta þátttakendur lagt sitt af mörkum til að draga úr kolefnisfótspori og jafnframt sýnt stuðning við jafnréttismál með táknrænum hætti.
Við val á trjám í lundinn er horft til þess að velja margar ólíkar tegundir af trjám, sem tákn um þann fjölbreytileika sem Jafnvægisvogin stuðlar að. Það er markmið Jafnvægisvogarinnar að endurtaka þetta árlega og væri ánægjulegt að sjá hlíðina fyllast á næstu árum, með auknu jafnrétti.
Við í FÁ erum afar ánægð og stolt með að vera í hópi þeirra flottu fyrirtækja sem hlutu Jafnvægisvogina í ár og höldum áfram að byggja upp vinnustað þar sem jöfn tækifæri og fjölbreytileiki eru í fyrirrúmi.
10.10.2025
Miðvikudaginn 8 október var haldinn skólafundur í FÁ, en það haldinn skólafundur einu sinni á ári hér í skólanum. Þá er kennsla felld niður og fá fræðslu um mikilvæg málefni eða nemendur og starfsfólk ræða um ýmis málefni er varða skólann og nemendur. Í ár fengu nemendur hinseginfræðslu frá Uglu Stefaníu Kristjönudóttur Jónsdóttur; Ég er eins og ég er, og er þessi fyrirlestur liður í því að bregðast við ákveðinni afturför í umræðum í samfélaginu gagnvart hinsegin fólki. Í FÁ erum við með stóran hóp af nemendum sem eru hinsegin en einnig erum við með fjölbreyttan menningarhóp og með nemendur frá ólíkum löndum myndast oft menningarmunur og ólíkar skoðanir. Í ár vildum við setja áhersluna á; Að öll eigum við rétt og öll erum við velkomin, öll megum við vera nákvæmlega eins og við erum !
Nemendur voru áhugasamir og höfðu margt til málanna að leggja um þetta mikilvæga málefni.
09.10.2025
Fjölbrautaskólinn við Ármúla tók á móti gestum frá Ítalíu, Grikklandi og Tyrklandi í september í tengslum við Erasmus+ verkefnið We Shape the Future: Integrating AI, AR and VR in Education. Boðið var upp á fjölbreytta dagskrá og vinnustofur þar sem þátttakendur könnuðu hvernig hægt er að nýta sýndarveruleika í námi og kennslu. Nemendur, kennarar og aðrir þátttakenndur lærðu meðal annars að skapa sína eigin sýndarheima og prófuðu sýndarveruleikabúnað þar sem þau gátu flogið um sólkerfið í geimskipi. Dagskráin endaði með vel heppnaðri ferð um Gullna hringinn ásamt fræðandi leiðsögn og klassískum íslenskum flatkökum með hangikjöti.
06.10.2025
Nemendur úr FÁ og MS fóru í síðustu viku á Sólheimajökul ásamt leiðsögumanni frá Asgard Beyond. Ferðin var hluti af verkefninu Draumur um jökul, sem er samstarfsverkefni skólanna og Félags Sameinuðu þjóðanna á Íslandi, tileinkað alþjóðlegu ári jökla.
03.10.2025
Nemendur í Hjúkrun aldraða (HJÚK3ÖH05) hjá Eddu Ýri fengu góða heimsókn í tíma í gær. Þá kom hún Halldóra Þórdís Friðjónsdóttir hjúkrunafræðingur frá Fríðuhúsi. Fríðuhús er dagþjálfun rekin af Alzheimersamtökunum. Hún var með fyrirlestur og verklega kennslu í umönnun fólks með heilabilun. Virkilega áhugavert erindi og gagnlegt. Takk fyrir komuna Halldóra!
01.10.2025
Það var stuð í Skautahöllinni í gær þegar nemendur FÁ skelltu sér á skauta í tilefni af íþróttaviku Evrópu og forvarnardeginum. Hér má sjá skemmtilegar myndir af skautaferðinni.
26.09.2025
Evrópski tungumáladagurinn er haldinn í tuttugasta og fimmta sinn í dag, 26. september. Þemað í ár er „Languages open hearts and minds!“.
Við hér í FÁ héldum upp á daginn í gær. Við skreyttum skólann með fánum og veggspjöldum um tungumál Evrópu. Spiluð voru lög á ýmsum tungumálum í frímínútum og svo var tússtafla á Steypunni þar sem að nemendur og starfsfólk áttu að skrifa “til hamingju með afmælið” á sem flestum tungumálum. Virkilega skemmtilegur dagur.