Áfangi
Aðstoð við AM nem.
- Áfangaheiti: AÐST2AM02
- Undanfari: Nemandi þarf að vera búinn með 1-2 annir í skólanum.
Markmið
Valáfangi sem felur í sér aðstoð á breiðum grundvelli við nemanda sem hefur annað móðurmál en íslensku.
Efnisatriði
Nemandi (móðurmál íslenska) hittir AM nemanda að lágmarki einu til tvisvar sinnum í viku (í eyðu í stundatöflu eða að lokinni síðustu kennslustund dagsins) eða í styttri tíma í einu (t.d. hádegishlé). Samverutími er sem samsvarar tveimur klukkustundum á viku.
-
Aðstoðin felst í;
- að kynna skólann, bókasafnið og setrið (í upphafi annar)
- að upplýsa um sérstaka viðburði innan/utan hefðbundins skólatíma o.s.frv.
- samtali; að gefa nemandanum tækifæri á að tala íslensku
- að hjálpa nemandanum í einstökum námsgreinum og/eða við heimanám.
Námsmat
Nemandi (íslenskt móðurmál) sendir umsjónaraðila áfangans vikulega upplýsingar um hvað gert var með AM nemandanum þá vikuna. Í lok annar skilar hann svo heildaryfirliti til umsjónaraðilans.