Stoðkerfi fyrir nemendur af erlendum uppruna




Kristen Mary Swenson
Kennslustjóri nemenda af erlendum uppruna

Viðtalstímar:
Mánudagar kl. 10:40 -12:00
Miðvikudagar kl. 13:05 - 14:05
Fimmtudagar kl. 09:20 - 10:20

Markmið

Allir nemendur FÁ eiga að fá sömu tækifæri til menntunar, óháð uppruna og þjóðerni. Hvers kyns fordómar og mismunun er aldrei liðin. Í FÁ er mjög fjölbreyttur nemendahópur og þ.á.m. margir nemendur af erlendum uppruna. Stefna skólans er að móta jákvæð viðhorf til fjölmenningar, jafnt meðal kennara sem nemenda, svo hver og einn nemandi fá notið sín á sínum forsendum. Nemendur skólans eiga að fá að njóta þeirrar fjölbreytni og tækifæra til menntunar sem felast í samveru og samskiptum við fólk af ólíkum uppruna og þjóðerni.

Leiðir

Ráðgjöf og aðstoð við heimanám. Sérstakir íslenskuáfangar (ÍSAN og ÍSTA) og grunnáfangi í ensku (ENSK1BY05). Til viðbótar má nefna nýja áfanga í lífsleikni, raungreinum og upplýsingatækni fyrir nemendur með litla íslenskunnáttu og áfanga í pólsku sem miðar að því veita pólskum nemendum áframhaldandi móðurmálskennslu (PÓLS2AU05).


(Síðast uppfært 11.01.2024)