4.5.2. Félagsfræðabraut

Félagsfræðabraut Fjölbrautaskólans við Ármúla er ætlað að veita nemendum breiða og almenna menntun auk þess að búa þá undir nám á háskólastigi. Einkum er lögð áhersla á að undirbúa nemendur fyrir nám í félagsvísindum og sögu.

Nám á félagsfræðabraut er alls 200 feiningar. Það samanstendur af kjarna (86 fe) sem er sameiginlegur öllum bóknámsbrautum, þriðja tungumáli (15 fe), brautarkjarna (50 fe) sem inniheldur samfélagsgreinar og loks vali (49 fe) sem nemendur velja í samræmi við áhuga og lokamarkmið. Til að útskrifast þarf nemandi að ljúka að lágmarki 40 feiningum á þriðja þrepi en hyggi hann á framhaldsnám í félagsvísindum eða skyldum greinum er ráðlegt að ljúka a.m.k. 15-20 feiningum til viðbótar á þriðja þrepi í sérgreinum brautarinnar.

Nánari upplýsingar og brautarlýsing eru á vefsíðu félagsfræðabrautar.



(Síðast uppfært 21.1.2016)