Viðbótarnám til stúdentsprófs

Samkvæmt ákvörðun menntamálaráðuneytisins um breytingar á aðalnámskrá framhaldsskóla, sem tók gildi í janúar 2002, geta nemendur sem lokið hafa starfsmenntun lokið viðbótarnámi til stúdentsprófs.

Í ljósi nýrrar námskrár sem tók gildi á haustönn 2015 hefur skólinn endurskilgreint þetta nám og skv. því þarf:

  • nemandi að ljúka að lámarki 20 einingum í íslensku (10 ein. á 2. þrepi og 10 ein á 3. þrepi), 20 einingum í ensku (10 ein. á 2. þrepi og 10 ein. á 3. þrepi) og 5 einingum í stærðfræði (á 2. þrepi)
  • heildafjöldi eininga vera að lágmarki 200 (starfsmenntun og viðbótarnám)
  • þrepaskipting náms að vera eftirfarandi: Fyrsta þrep 17-33%, annað þrep 33-50% og þriðja þrep 17-33%

Viðbótarnám veitir ekki aðgang að öllu námi á háskólastigi og eru nemendur því hvattir til þess að kynna sér undirbúningskröfur viðtökuskóla hyggi þeir á nám á háskólastigi.

Til að útskrifast með viðbótarnám til stúdentsprófs þarf starfsnámi og tilheyrandi starfsþjálfun að vera lokið eða ljúka samtímis viðbótarnáminu.


Síðast uppfært: 4.3.2021