Canva
Canva er grafískt hönnunartól á netinu. Það er notað til að búa til færslur á samfélagsmiðlum, kynningar, veggspjöld, myndbönd, lógó og fleira...
Allir starfsmenn og nemendur FÁ hafa nú frían aðgang að Canva. Slóðin er: canva.com
Til að tengjast inní forritið velur þú "Log in" hnappinn efst til hægri í valmyndinni.
Upp kemur valmynd sem gefur kost á að nota mismunandi leiðir til að tengjast. Hér er mikilvægt að velja valkostinn "Continue another way"
og í næstu valmynd er mikilvægt að velja valkostinn "Continue with Microsoft" þar sem aðgangurinn fer í gegnum Menntaskýið. Allir eiga að nota "FA" aðganginn sinn.
Nú koma upp kunngulegar innskráningarmyndir þar sem notandinn skráir notendanafnið sitt og lykilorð.
![]() | ![]() |
Svo er bara að halda af stað!
Gangi þér vel og góða skemmtun!
Síðast uppfært: (20.02.2024)