Áfangi
Skráning f. tanntækna
- Áfangaheiti: SKRÁ2TT05
- Undanfari: Áfanginn er tekinn samhliða TAMS3TT05
- Efnisgjald: 0
Markmið
Eftir að hafa stundað nám í áfanganum á nemandinn að hafa góða þekkingu á skráningarkerfum sem notuð eru á tannlæknastofum. Nemandinn á að hafa yfirlit yfir tímabókanir, kostnaðar áætlanir, meðferðar áætlanir, sjúkraskrár og önnur gögn sem tilheyra tannlæknaþjónustu. Einnig á hann að þekkja tölvuskráningar og algengustu forrit sem notuð eru á tannlæknastofum.
Efnisatriði
Útlit tanna, heiti tanna, heiti flata, Haderup kerfi, FDI kerfi, dagbók, símsvörun, tímapantanir, tannkortið, skráning á tannstöðu, DMFT-S, skráning og úrlestur ýmissa aðgerða, gjaldskrá, kostnaðaráætlun, tölvuforritið tannlæknaþjónninn ofl.
Námsfyrirkomulag
Efnið er kynnt með glærum á netinu og dæmum. Mikið er unnið að verkefnum og æfingum. Ætlast er til að nemendur taki virkan þátt. Tölvuskráning í tannlæknakerfum fer fram í skólanum eða í samráði við nemendur ef þeir eru á landsbyggðinni.
Kennslugögn
Stuðst er við Lærebog for klinikassistenter bók 1 - ásamt efni frá kennara.
Ein staðbundin lota er á önninni.
Námsmat
Ýmis verkefni og próf 30 %. Lokaprófi er skipt í tvo hluta sem hvor um sig gildir 35% en þó þarf að ná lágmarkseinkunn í báðum hlutum til að ljúka áfanganum.