Áfangi
Sálfræði grunnáfangi
- Áfangaheiti: SÁLF2AA05
Markmið
Markmið er að nemendur:
- þekki helstu stefnur og sálfræðinnar og fái innsýn í fjölbreytileika hennar.
- Þekki helstu starfssvið sálfræðinga og viti hvernig sálfræði nýtist í daglegu lífi og í meðferð
- Þekki helstu hugrænar kenningar um minni og fái innsýn í minnistækniaðferðir og námstækni
- viti hvað viðbragðsskilyrðing er og þekki tengsl hennar við daglegt líf, svo sem óttaviðbrögð, auglýsingar, meðferðaúrræði o.s.frv.
- viti hvað virk skilyrðing er og þekki tengsl hennar m.a við uppeldi, hegðunarvandamál meðferð, nám o.s.frv
- Þekki helstu rannsóknaraðferðir sálfræðinnar og þjálfist í vísindalegri hugsun og vinnubrögðum með því að framkvæma einfalda tilraun og skrifa skýrslu samkvæmt viðurkenndum reglum
Efnisatriði
- Kafli 1: Hvað er sálfræði?
- Kafli 3: Ólíkar stefnur sálfræðinnar
- Kafli 4: Námssálfræði (viðbragðskilyrðing og virk skilyrðing)
- Kafli 5: Hugræn sálfræði (æðra nám og minni)
- Kafli 6: Rannsóknir í sálfræði
Kennslugögn
Inngangur að sálfræði eftir Kristján Guðmundsson og Lilju Ósk Úlfarsdóttur. JPV útgáfa 2008
Námsmat
Lokapróf 65%
Verkefni á önn 35%