Áfangi
Næringarfræði
- Áfangaheiti: NÆRI2NN05
Efnisatriði
Í áfanganum er farið í næringarefnin, hlutverk þeirra, dagsþörf og skortseinkenni. Fjallað er um manneldismarkmiðin, ráðlagða dagskammta og fæðuhringinn og í tengslum við það skoðaðar kannanir á mataræði Íslendinga. Einnig eru teknar fyrir merkingar matvæla og aukefni í matvælum. Kenndir eru útreikningar á orku- og næringarinnihaldi fæðis. Í kjölfarið vinna nemendur verkefni um neyslukönnun. Einnig verður farið í offitu og megrunarkúra. Farið verður í næringu sérstakra hópa t.d. ófrískra kvenna og aldraðra.Í lokin verður fjallað um sérfæði á sjúkrastofnunum t.d. sykursjúkra og hjartasjúkra.
Kennslugögn
Lesefni á Moodle dugir til námsins og því ekki nauðsynlegt að kaupa kennslubók. Ef nemandi vill nota kennslubók til stuðnings er mælt með eftirtöldum bókunum:
- Lífsþróttur eftir Ólaf Gunnar Sæmundsson
- Næring og hollusta eftir Elísabetu Magnúsdóttur
Námsmat
Lokapróf 30% (gagnapróf)
Verkefni á önn: 70%