Áfangi

Furðusögur - enska

  • Áfangaheiti: ENSK2FU05
  • Undanfari: Að nemandi hafi réttindi til að stunda nám í ensku á 2. þrepi

Námsfyrirkomulag

Í áfanganum verða lesnar enskar furðusögur. Fjallað verður um uppruna furðusagna og bókmenntaformið skoðað. Fjallað verður um þróun og stöðu furðusagnanna innan bókmenntanna. Nemendur lesa furðusögur, horfa á þætti og kvikmyndir sem tengjast sagnaforminu og kynnast áhrifum bókmenntaformsins á dægurmenningu í fortíð og nútíð.

Kennslugögn

Upplýsingar hjá kennara í upphafi annar.

Námsmat

Verkefni og lokapróf.
Nemandi verður að standast lokapróf til að ná áfanganum.