Áfangi
Stjórnun
- Áfangaheiti: STJR3IS05
- Undanfari: 10 feiningar í viðskiptagreinum á öðru þrepi
Markmið
Nemandi - geti gert grein fyrir þróun stjórnunar sem fræðigreinar - geti útskýrt mikilvægi stjórnunar fyrir einstakling, fyrirtæki og samfélag - þekki helstu stjórnunarkenningar og stjórnunarstíla - þekki helstu hlutverk stjórnandans - þekki helstu hvatningarkenningar - þekki til grunnatriða mannauðsstjórnunar - þekki ráðningarferli - geti gert starfsferilsskrá - þekki helstu atriði varðandi árangursríka fundarstjórn - þekki helstu tegundir skipurita - geti túlkað skipurit og lýst mikilvægi skýrra boðleiða í fyrirtæki - geti lýst kostum og göllum hópvinnu og lýst forsendum árangursríks hópstarfs - geti undirbúið viðtal og stjórnað samskiptum meðan á viðtali stendur - þekki helstu aðferðir sem notaðar eru til þess að leggja mat á árangur.
Efnisatriði
Þróun stjórnunarfræða, klassísk stjórnun, atferlisnálgun, kerfisnálgun og aðstæðnastjórnun, umhverfi stjórnandans, fyrirtækjamenning, siðfræði, stefnumótun, ákvarðanataka, skipulag fyrirtækja, eftirlit, stefnumiðað árangursmat (BSC), stjórnun breytinga, mannauðsstjórnun, samskiptastjórnun, starfsmannaviðtöl, frammistöðumat, starfsferilsskrá, ráðningarferli, hlutverk stjórnenda, stjórnunarstílar, áætlanagerð, starfsánægja, hvatning, hópvinna, fundarstjórn, boðleiðir.
Námsfyrirkomulag
Sjá kennsluáætlun.
Kennslugögn
Inngangur af stjórnun eftir Sigmar Þormar ásamt öðrum gögnum birt á Moodle.
Námsmat
Verkefni og próf á önninni 50% og Lokapróf 50%