Fréttir

FÁ er fyrirmyndarstofnun

21.2.2023

Fjölbrautaskólinn við Ármúla hlaut nú á dögunum viðurkenningu í könnun Sameykis um stofnun ársins 2022. FÁ er fyrirmyndarstofnun og var í þriðja sæti í flokka stórra stofnana með 90 starfsmenn eða fleiri.

Magnús Ingvason skólameistari veitti viðurkenningunni viðtöku við hátíðlega athöfn hjá Sameyki.

Titlana Stofnun ársins, Stofnun ársins hljóta þær stofnanir sem þykja skara fram úr í þeim níu þáttum sem könnunin byggir á að mati starfsmanna þeirra. Um er að ræða mat á innra starfsumhverfi stofnana og starfsstaða.

Stofnun ársins er samstarfsverkefni Sameykis, fjármála- og efnahagsráðuneytisins og Reykjavíkurborgar. Könnunin veitir mikilvægar upplýsingar um styrkleika og áskoranir í starfsumhverfi stofnana, starfsfólki til hagsbóta. Á hverju ári tekur allt starfsfólk skólans, óháð félagsaðild, þátt í könnuninni sem fer þannig fram að spurningalisti er lagður fyrir starfsfólk á netinu. Mælingin nær yfir níu ólíka þætti og þannig fæst heilsteypt mynd af innra starfsumhverfi stofnana. Þeir níu þættir sem eru mældir eru: stjórnun, starfsandi, launakjör, vinnuskilyrði, sveigjanleiki vinnu, sjálfstæði í starfi, ímynd stofnunar, ánægja og stolt og jafnrétti.

Fleiri myndir frá athöfninni má sjá hér.