Fréttir

Fyrirtækjasmiða ungra frumkvöðla

4.4.2019

Á morgun föstudag 5. apríl og laugardaginn 6. apríl, munu um 550 ungir frumkvöðlar frá 13 framhaldsskólum kynna og selja vörur sínar á Vörumessu Ungra frumkvöðla í Smáralindinni. Alls eru þarna á ferðinni 120 nýstofnuð fyrirtæki og eru fjögur þeirra stofnuð í skólanum okkar. Það verður gaman að mæta í Smáralindina um helgina og sjá hvað nemendur hafa afrekað í þessum málum.