Fréttir

Upphaf haustannar 2023

11.8.2023

Nú er starfið að komast í fullan gang í skólanum eftir sumarleyfi og er skrifstofa skólans nú opin.

Hér eru helstu dagsetningar framundan sem gott er að hafa í huga fyrir nemendur og forráðamenn:

16. ágúst - stundatöflur verða aðgengilegar í INNU.

17. ágúst kl. 13.00 - kynningarfundur fyrir nýnema (2007) í fyrirlestrarsal skólans.

18. ágúst - kennsla hefst samkvæmt stundarskrá.

Töflubreytingar fara fram 16. og 17.ágúst.  Breytingar fara einungis fram rafrænt á netfanginu toflubreytingar@fa.is.

Foreldrar/forráðamenn nýnema verða boðaðir í viðtal með börnum sínum við umsjónarkennara 14. og 15. ágúst. Boðun í viðtalið fer fram nokkrum dögum áður með tölvupósti og/eða símtali.

Foreldrafundur verður haldinn 29. ágúst kl. 17.00.

Stefnt er á að halda nýnemadag 1. september.

Skráning í fjarnám við FÁ á haustönn hefst 18. ágúst og stendur til 3. september.

Allar upplýsingar um bókalista og námið má finna á heimasíðu skólans; www.fa.is.

Í lokin viljum við minna á að í upphafi skólaárs er líka gott að gott að glöggva sig á öllum helstu dagsetningum á skólaárinu og skrá hjá sér. Einnig hvetjum við alla til að fylgjast með fréttum úr skólastarfinu á Facebook og Instagram .

Endilega hafið samband við skrifstofu skólans ef einhverjar spurningar vakna.

Við hlökkum til að sjá ykkur öll á nýju skólaári.