Fréttir

Vel heppnuð skautaferð

8.2.2023

Það var líf og fjör í Skautahöllinni í dag þegar nemendur FÁ skelltu sér á skauta en sú góða hefð hefur skapast í skólanum að fara á skauta einu sinni á skólaári við góðar undirtektir nemenda.

Um 160 nemendur mættu á skauta í dag og er það metþátttaka. Allir skemmtu sér vel, enginn slasaðist og fengu nemendur svo samloku frá Lemon og Svala í boði Nemó.

Hér má sjá fleiri myndir frá skautaferðinni.