Ársskýrsla 2020/2021

Ársskýrsla bókasafns Fjölbrautaskólans við Ármúla
Skólaárið 2020-2021

Starfsmenn
Þóra Kristín Sigvaldadóttir forstöðumaður í fullu starfi og Kristín Björgvinsdóttir bókasafnsfræðingur í hálfu starfi til 5. október. Kristín lét af störfum eftir 29 ára starfsferil við skólann fyrst sem forstöðumaður og síðan bókasafnsfræðingur frá 1. nóvember 2017 þegar hún fór í hálft starf.

Starfsemi (tölur í svigum frá síðasta ári)
Notendur: Nemendur í dagskóla voru á haustönn 907 (911) en á vorönn 853 (843). Fjarnemendur á haustönn voru 1274(1210) en 1346 (1061) á vorönn. Starfsmenn skólans eru 108 (112).
Safnið er opið: Mánudaga - fimmtudaga kl. 8:00 - 16:30 og föstudaga kl. 8:00 -16:00.

Eins og ávallt í byrjun haustannar voru allar bókahillur safnsins þrifnar og bókakostur yfirfarinn. Nýjum bókum er stillt upp á hringekju í miðju safninu til að vekja athygli nemenda og starfsmanna á þeim. Til að hvetja til aukins lesturs er bókum og öðru efni sérstaklega stillt upp í tengslum við viðburði eins og Dag íslenskrar tungu, afhendingu Íslensku bókmenntaverðlaunanna, Bókasafnsdaginn og Bókmenntahátíð í Reykjavík.

Safnkostur

Safnkostur bókasafnsins er fjölbreyttur og er hann skráður og lánaður út í Gegni, landskerfi bókasafna en hann er eftirfarandi.

Bókaeign: 11.902 (11.952) eintök, 10.704 (10.788) titlar eftir afskriftir.
Timarit: 50 (51) tímarit berast reglulega, sum án þess að greitt sé fyrir þau.
Nýsigögn: 1301 eintök (1295): 186 myndbönd, 58 hljóðsnældur, 11 skyggnusett, 142 hljómplötur og -diskar, 120 kort, 20 tölvuforrit, 1 glærusett, 34 margmiðlunardiskar, 727 mynddiskar og 2 spilasett.
Afskriftir: 304 (671) eintök bóka og 7 margmiðlunardiskar.
Aðföng bóka: 242 eintök (202) þ.e. fyrir afskriftir.
Gjafir: 48 eintök (23).

Útlán
Útlán voru alls 3107 þar af innanhússlán 1161. Millisafnalán voru 44.

Rekstrarkostnaður 2019 2020
Bækur, tímarit og annað safnefni 840.000 998.867
Gegnir – bókasafnskerfi 469.560 530.748
Gagnasöfn og vefbækur 180.172 318.986
Annar kostnaður 97.706 180.811
Samtals: 1.587.483 2.029.412

Gagnasöfn og vefbækur
Bókasafnið tekur þátt í að greiða fyrir landsaðgang að rafrænum gagnasöfnum í gegnum vefinn hvar.is. Bókasafnið greiðir fyrir áskrift að vefbókasafninu snara.is og er aðgangur opinn öllum í skólanum.

Húsnæði
Engar endurbætur voru gerðar á húsnæði safnsins á árinu.

Búnaður
Þóra Kristín fékk fartölvu í október. Í nóvember voru keyptir tveir dagsbirtulampar frá Eirberg vegna aukinnar eftirspurnar hjá nemendum. Alls eru á safninu sex dagsbirtulampar sem eru mikið notaðir. Í febrúar voru keypt þrjú utanáliggjandi drif og þar af eitt sem les Blue Ray myndir. Alls eru til 11 drif á safninu. Nýr prentari var settur inn í vinnuherbergi bókasafnsfræðinga.

Notendafræðsla
Þjónusta bókasafnsins var kynnt fyrir nemendum í móttöku fyrir nýnema bæði á haustönn og vorönn. Á haustönn fengu nemendur í lífsleikni alls sex hópar fræðslu um skipulag safnsins auk tilsagnar í upplýsingaleit, heimildanotkun og leystu verkefni í bókasafnskerfinu Gegni og fleiri gagnagrunnum (2 klst.). Nemendur í UPPÆ1SR05 alls átta hópar fengu safnkennslu og leystu einnig verkefni í Gegni (2 klst.). Nemendur í TAMS3TT05 fengu tilsögn í vali á heimildum og áreiðanleika heimilda auk kennslu í upplýsingaöflun með áherslur á gagnagrunna í heilbrigðisgeiranum (1 klst.). Á vorönn fengu tveir hópar í ÍSLE2HMO5 ásamt tveimur hópum í HBFR1HH05 tilsögn í heimildaleit, vali á heimildum og áreiðanleika heimilda (1 klst.). Nemendur í KVMG2J05 fengu kynningu á flokkunarkerfum og flokkun myndefnis.

Nemendur í kennsluréttindanámi fengu tilsögn í því hvernig nýta má safnið í kennslu og þeim bent á möguleika í samstarfi bókasafnsfræðinga og kennara. Auk þess var fjallað um upplýsingalæsi og nýja aðalnámskrá (1 klst.).

Almannatengsl
Gestum sem koma í heimsókn í skólann er oftast boðið að skoða safnið. Þegar skólinn er kynntur fyrir foreldrum nýnema er bókasafnið opið og er þeim þá sagt frá starfsemi safnsins. Heimasíða bókasafnsins er í virkri endurskoðun. Þar er að finna upplýsingar um starfsemi safnsins svo sem afgreiðslutíma, safnkost, tengla á gagnlegt rafrænt efni og ýmsar leiðbeiningar um heimildaleit og heimildaskráningu.

Kennsla, námskeið, fundir ofl.
Þóra Kristín kenndi áfangann SKJA1SV02 í fjarnámi á vorönn. Samstarf hefur helst verið við bókasafnsfræðinga í öðrum framhaldsskólum sem funda reglulega yfir veturinn. Þóra Kristín sér um að uppfæra bókalista í Innu. Samstarfshópurinn hittist tvisvar á Teams fundi á haustönn. Einn fundur vetrarins var haldinn hér í skólanum í mars.


Annað
Starfið í vetur var ekki með hefbundni sniði sökum Covid-19 sem dró úr heimsóknum nemenda og starfsmanna á bókasafnið. Nokkuð var um að nemendur hefðu samband við safnið til þess að fá gögn að láni, aðstoð við heimildaleitir og heimildaskráningu á meðan á lokun skólans stóð yfir.

Bókasafn FÁ ber fyrst og fremst að þjóna nemendum og starfsfólki skólans. Þarfir nemenda og starfsfólks eru jafn margvíslegar og einstaklingarnir eru margir. Mun fleiri nemendur nýta sér aðstöðu og fjölbreytta þjónustu bókasafnsins en útlánatölur gefa til kynna. Borðin með skilrúmum í vesturenda safnsins hafa verið sértaklega vinsæl á meðal nemenda í vetur.

Bókasafnið er staður sem nemendur og starfsfólk koma til að grípa í áhugavert efni, slaka á eða sinna áhugamálum og námi á milli tíma. Vellíðan safngesta skiptir því miklu máli sem og í öðru námsumhverfi. Bókasafnið er mikilvægur þáttur í fjölbreyttu skólastarfi og mun halda áfram að vaxa og þroskast í takt við breyttar þarfir í því upplýsingasamfélagi sem við búum í.

Mikilvægt er að halda uppi metnaði og framsýni til að byggja upp góðan safnkost sem styður sem best við nám og kennslu og er í takt við þarfir notenda safnsins.

Reykjavík 8. júní 2021

Þóra Kristín Sigvaldadóttir